"Þetta er alveg skelfilegt helvítis fífl!"

„Þetta er alveg skelfilegt helvítis helvíti,".   „We have to kill something."  Þetta segir vitbrekka austur á fjörðum, sem rataði í sænskan fréttaskýringarþátt sem verður sýndur í heild sinni annað kvöld í Rískissjónvarpinu.  Þar mun þetta gáfnasljós væntanlega veita meiri birtu inn í þjóðarsál Íslendinga, með fjálglegum lýsingum sínum á því hvernig fyrirtækið Eskja hf á Eskifirði, framleiðir fiskimjöl úr utankvóta-makríl, fyrir norskan eldislax sem er síðan seldur Svíum sem sjálfbær og vistvæn vara.

Umhverfisstefna Eskju hf felst meðal annars í því að "þættir í starfsemi fyrirtækisins séu í fullri sátt við umhverfi sitt. Fyrirtækið umgengst auðlindir og umhverfi af ábyrgð og samkvæmt þeim lögum og reglugerðum sem gilda."  "Allt starfsfólk Eskju er meðvitað um umhverfisstefnu þess og fær það tækifæri til að taka þátt í mótun og þróun hennar þannig að þeir sjái hag sinn og fyrirtækisins fara saman."  Sérstaklega á þetta við um Hauk Líndal Jónsson, fyrrverandi verksmiðjustjóra mjöl- og lýsisvinnslu Eskju hf, sem kemur fram í áðurnefndum sjónvarpsþætti og á einkar nærgætinn hátt miðlar af visku sinni um hvalveiðar og fleiri umhverismál, því kemur það ekki á óvart að fyrirtækið fékk hann til að gera skýrslu um "grænt bókhald", fyrir rekstur Eskju hf, á sínum tíma.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Ég hélt að þú værir í sundi.

Rósamunda (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 23:30

2 Smámynd: Ólína Gunnlaugsdóttir

Ha, ha, ég kemst ekki í sund hér heima og fæ þá útrás í að blogga.  Hélt að engin mundi lesa þetta?

Ólína Gunnlaugsdóttir, 23.3.2009 kl. 12:40

3 identicon

Svona er lífið; full of supríx (af hverju er enginn svona kall með sundhettu?)

Rósamunda (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólína Gunnlaugsdóttir

Höfundur

Ólína Gunnlaugsdóttir
Ólína Gunnlaugsdóttir
Dreifari
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband